hhmmmmm

jæja góðir hálsar og slæmir.

ég fékk pössun um helgina og það var svo gaman að vera aðeins frjáls.

ekki það að það var samt svo yndislegt að knúsa strákinn þegar hann kom heim í morgun.

 en allavega það var mikið  sofið. og ekkert djammað....

en allavega hann sonur minn er búinn að vera mjög actívur í dag. hann er búinn að hlaupa útum allt og segja mér frá voffum og kisum.

hann er bara einu sinni búinn að fá blóðnasir í dag (nítt met) og það var vegna þess að hann ákvað að það væri góð hugmynd að skalla gólfið í frekjukasti.

hann fær svona hugmyndir stundum. hann er orðinn 2gja ára og mér mér samt uppað mjöðmum. ég verð seint talin hávaxin kona en ég er sátt með mína 164 cm. hann er að stækka meira og þroskast samfara því hann er farinn að segja setningar eins og ég veit ekki um boltann eða mamma ég vil leika. hann er svo duglegur og þroskaður miðað við allt sem á undan er gengið.

 

ég hlakka svo til að eiga afmæli. það er samt í næsta mánuði þá verð ég 20  ára og hundgömul....   

hehe nei ég segi það kannski ekki alveg en nálægt því samt.

 

en allavega ég nenni ekki að blogga meira.

 

með kveðju

amaban   W00t

 

í súper góðu skapi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lovísa

Frábært að vera í góðu skapi

Lovísa , 10.4.2008 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband